Byrjendur
6. vikur
Byrjendaprógram
Ætlað konum og körlum sem eru annaðhvort byrjendur eða hafa tekið sér langa pásu og Sem eru tilbúnin að ná markmiði sínu og vilja kveikja á hlaupa neistanum á ný!
Markmið
Þú ætlar að koma þér úr því að vera byrjandi og fara upp í 5km á 6vikum. Þú munt hreinlega ekki vilja hætta að hlaupa eftir 6 vikur!
Fyrirkomulag
Þjálfunin fer fram í fjarþjálfun. Við skráningu færð þú aðgang að meðlimasíðunni hjá Runwithsabrina, þar færð þú allar æfingar með útskýringum að æfingum og video af styrktaræfingunum.
Eftir hverja æfingu færð þú spurning sem þú svarar og svo er val fyrir þig að fylla inn í hvernig þér gekk, en það er alltaf val
Þar inni eiga stað öll okkar samskipti, þú getur haft samband við mig og ég við þig einnig færð þú aðgang að spjall svæði fyrir allar konur sem eru í þjálfun.
Þú tekur æfinguna þá daga vikunnar sem þér hentar en þú hefur jafn langan tíma til að klára prógramið, þú dettur út af meðlimasíðunni þegar prógrami þínu líkur.
Það sem er innifalið
* 2-3 hlaupaæfingar í viku, 1 - 2 styrktaræfingar í viku. Hlaupaæfingarnar eru allar stuttar, hnitmiðaðar, markvissar og skemmtilegar. Allar æfingar getur þú gert úti eða heima hjá þér.
- Tæknifræðsla - NÝTT
- Fyrirlestrar frá ingu birnu. þar sem hún er hjálpa okkur með andlega heilsu. Hún kemur með verkefni um fræðslu um hvernig þú getur bætt andlega heilsu á meðan þú hleypur. - NÝTT
-Næringafræðsla.
þú færð aðgang að skjali með næringafræðslu og ráðleggingum
--Aðgang í FB grúppu með þjálfara og meðlimum og fyrrum meðlimum sem hafa sömu og mjög svipuð hlaupa markmið og þú.
-Pepp og aðhald þegar þú þarft
-Þessa geggjuðu tilfinningu að ná markmiði þínu
- Þó að prógramið sé 6 vikur þá hefur þú aðgang að því í 7 vikur
Verð 26.986kr eða skipta í 2 greiðslur 13.493kr endilega hafðu samband á spjallinu eða á sabrina@runwithsabrina.com fyrir skiptingu á greiðslu