Skilmálar | RunWithSabrina
top of page

Skilmálar

Réttur til að hætta við pantanir

RunWithSabrina áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur

Allt efni á heimasíðu www.runwithsabrina.com og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið

Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. 

Endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu.

Skuldbinding

Þjálfun sem felur í sér skuldbindingu er ekki endurgreidd eða stöðvuð fyrr en skuldbindingar tímabili er lokið

Verð

Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef verð æfingaprógrama hækka mun RunWithSabrina senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum.  

Eigin ábyrgð

Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá Run With Sabrina. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá RunWithSabrina. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjáRunWithSabrina. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá RunWithSabrina 

Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá RunWithSabrina staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu).

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Breytingar

RunWith Sabrina áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.

RunWithSabrina áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum.

Með því að greiða fyrir þjálfunina ert þú að samþykkja eftirfarandi skilmála

bottom of page